Auglýst útboð

Bakkafjörður, endurbygging brimvarnar 2020

21.9.2020

Hafnarstjórn Langaneshafna óskar eftir tilboðum í endurbyggingu brimvarnar á Bakkafirði.  Endurbyggja og styrkja skal grjótkápu brimvarnar sem umlykur smábátahöfnina á Bakkafirði. Verkið felst í vinnslu grjóts í grjótnámu á Kolbeinstanga við Vopnafjörð, flutning efnis að garðstæði og endurbyggingu grjótkápu brimvarnar.

Helstu magntölur:

       Vinnsla grjóts í námu og útlögn 3.066 m³.

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. maí  2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 21. september 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. október 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.