Auglýst útboð

Arnarnesvegur (411), undirgöng á Arnarneshæð

15.3.2022

Vegagerðin og Garðabær bjóða hér með út gerð undirganga undir Arnarnesveg fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Núverandi göngu- og hjólastígur beggja vegna Arnarnesvegar verður lagfærður og lagður í undirgöng undir veginn. Gatnamót yfir undirgöngum verða jafnframt lagfærð, beygjureinum breytt og gönguleiðir uppfærðar. Hluti af framkvæmdinni er einnig gerð bráðabirgða vega og stíga fyrir umferð akandi, gangandi og hjólandi á framkvæmdatíma. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Garðabæjar.
Helstu magntölur eru:

  • Gröftur  10.000 m3
  • Bergskering  6.400 m3
  • Fyllingar  2.000 m3
  • Járnbending  119.000 kg.
  • Steypa  880 m3
  • Malbikun  2.000 m2
  • Vegrið  370 m
  • Ljósabúnaður og staurar  77. stk.
  • Stólpar og undirstöður umferðarljósa 14. stk.

Verkinu skal að fullu lokið 31. maí 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 15. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. mars 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.