Auglýst útboð

Álftaneshreppsvegur (533): Snæfellsnesvegur - Leirulækur (Hraðútboð)

6.7.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu á um 1,5 km kafla Álftaneshreppsvegar ásamt endurbyggingu á 6,0 km kafla á Álftaneshreppsvegi (522-01) Snæfellsnesvegur - Leirulækur.

Helstu magntölur eru:

  • Bergskeringar                                33.300 m3
  • Fyllingar og fláafleygar                26.200 m3
  • Ræsalögn                                            186 m
  • Styrktarlag                                     16.600  m3
  • Burðarlag                                         6.550 m3
  • Tvöföld klæðing                             38.500 m2
  • Frágangur fláa                               53.000 m2

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2021. 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 6. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. júlí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.