Auglýst útboð

Álftanes, sjóvarnir 2022 – Hlið í Helguvík

4.10.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  sjóvarnir í Helguvík að sunnanverðu að Hliði. 
Helstu magntölur og verkþættir:

Heildarlengd sjóvarnar er um 106 m
Flokkað grjót og kjarni samtals um 1.300 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. mars 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 4. október 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. október 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.