Auglýst útboð
Álftanes, sjóvarnir 2018
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir á Álftanesi. Verkið felst í styrkingu sjóvarnar við Blikastíg og gerð sjóvarnar við Hliðsnes.
Helstu magntölur:
Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.400 m3
Upptekt og endurröðun grjóts um 300 m3
Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 30. mars 2019.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) frá og með þriðjudeginum 2. október 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. október 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.