Auglýst útboð

Akureyri – Torfunefsbryggja, endurbygging stálþils 2022

11.7.2022

Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í verkið „Akureyri – Torfunefsbryggja, endurbygging stálþils 2022“. 

Helstu verkþættir eru:

·         Fylla framan við núverandi stálþil, 23.000 m3.

·         Rif á þekju steyptri þekju og kantbita, 1.200 m2.

·         Rif á furubryggju við enda Torfunefsbryggju.

·         Reka niður 117 stk. Tvöfaldar stálþilsplötur af gerðinni AZ14-770 og AZ12-770 fyrir bakþil.

·         Reka niður 151 stk. tvöfaldar stálþilsplötur af gerðinni AZ14-770 10/10 og ganga frá stögum og stagbitum.

·         Steypa um 234 m langan kantbita með pollum, kanttré og stigum.

·         Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.

·         Reka niður 146 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ 22-800 og eina einfalda sömu gerðar

·         Steypa 62 akkerisplötur og uppsetning staga.

·         Steypa um 230 m langan kantbita með pollum og setja upp kanttré, stiga og þybbur.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 12. júlí  2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26 júlí 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.