Auglýst útboð

Akranes, sjóvarnir 2022

8.11.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir á tveimur stöðum á Akranesi, annars vegar við Sólmundarhöfða og hins
vegar við Miðvog.

Heildarlengd sjóvarna er um 216 m, flokkað grjót og kjarni samtals um 2.300 m3.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. mars 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 8. nóvember 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. nóvember 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.