Matsáætlanir
  • Sæbrautarstokkur - yfirlitsmynd

Sæbrautarstokkur í Reykjavík - matsáætlun

28.6.2022

Vegagerðin í samstarfi við Reykjavíkurborg hyggst leggja Sæbraut í stokk á um 1 km kafla er nær frá Vesturlandsvegi og norður fyrir Kleppsmýrarveg í Reykjavík. Eitt af skilgreindum markmiðum með gerð stokka er að bæta umhverfisgæði í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem eru aðskilin með umferðarþungum stofnbrautum. Stokkalausnir eru einnig hugsaðar til að greiða götu Borgarlínunnar þar sem hún þarf að þvera stofnbrautir.

Í matsáætlun er umfang mats á umhverfisáhrifum skilgreint. Vinsun fer fram á þeim þáttum
framkvæmdarinnar sem taldir eru hafa áhrif á umhverfið og einnig þeim umhverfisþáttum sem líklegir eru
taldir til að verða fyrir áhrifum vegna einstakra framkvæmdaþátta, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma.
Eftir því sem við á er gerð grein fyrir rannsóknum sem þegar hafa verið gerðar á viðkomandi
umhverfisþætti auk annarra gagna sem stuðst verður við og rannsóknum sem framkvæmdaaðili hyggst standa að vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.

Matsáætlun