Matsáætlanir
  • Færsla Hringvegar um Mýrdal kort

Færsla Hringvegar (1) um Mýrdal - drög að tillögu að matsáætlun

22.12.2020

Vegagerðin auglýsir drög að tillögu að matsáætlun vegna færslu Hringvegar (1-b2_b4) um Mýrdal. Árið 2013 var Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 samþykkt með nýrri veglínu Hringvegar um Mýrdal, í jarðgöng sunnarlega í Reynisfjalli og sunnan við byggðina í Vík. Samgönguáætlun 2020-2024 gerir ráð fyrir fjármagni í undirbúning þessarar nýju veglínu. Vegagerðin vinnur því að forhönnun og undirbúningi á mati á umhverfisáhrifum vegna færslu Hringvegarins.

 

Í drögum að matsáætlun er m.a. gerð grein fyrir eftirfarandi:

  • Valkostagreiningu.
  • Helstu áhrifaþáttum framkvæmdarinnar.
  • Hvernig staðið verði að mati á umhverfisáhrifum.
  • Fyrirkomulagi kynninga og samráðs.
  • Framsetning gagna í frummatsskýrslu.

Opnuð hefur verið vefsjá (vik-hringvegur.netlify.app) þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar sem tengjast matinu og koma á framfæri ábendingum og athugasemdum. Einnig má senda skriflegar athugasemdir eða ábendingar um drög að tillögu að matsáætlun á netfangið erla@vso.is eða VSÓ Ráðgjöf (b.t. Erla Björg Aðalsteinsdóttir), Borgartúni 20, 105 Reykjavík.

Frestur til að senda inn ábendingar er til og með 1. febrúar n.k. 

Drög að tillögu að matsáætlun