Kynningargögn
Hringvegur (1-a1). Ný brú á Núpsvötn í Skaftárhreppi
Vegagerðin kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir við nýja 150 m langa brú á Hringvegi (1) (vegkafli 1-a1) um Núpsvötn í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Í tengslum við byggingu nýrrar brúar verður Hringvegurinn endurbyggður í nýrri legu á um 2,0 km löngum kafla.
Vegagerðin áformar að bjóða út í einu útboði, nýja brú á Núpsvötn sem fjallað eru um hér og nýja brú á Hverfisfljót sem Skipulagsstofnun hefur þegar fjallað um . Vísað er til ítarlegrar fyrirspurnar um matsskyldu sem gerð var fyrir Hverfisfljót og afgreiðslu Skipulagsstofnunar, dags. 27. janúar 2021, þar sem kemur fram að framkvæmdir viðHverfisfljót skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum.
Einnig verður byggður nýr áningarstaður vestan Núpsvatna. Á þessum stað er fallegt útsýni í vesturátt að Lómagnúp og austurátt að Öræfajökli og því er nauðsynlegt að byggja nýjan, öruggan áningarstað. Hönnun áningarstaðarins tekur mið af nýjum áningarstað við Hverfisfljót (sjá yfirlitsmynd í fylgiskjölum).
Tilgangur framkvæmdarinnar er að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi. Markmiðið er að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum. Með nýrri tvíbreiðri brú á Núpsvötn og áningarstað, mun umferðaröryggi aukast til mikilla muna og umferð um svæðið verða greiðari en hún er nú.