Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.2.2019
Færð á vegum
Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eða hálka á
nokkrum vegum.
Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og víða
skafrenningur. Þæfingur er á Svínadal, Skógarströnd, í Haukadal og í Heydal en lokað er yfir Fróðárheiði.
Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum og eitthvað er um éljagang og skafrenning. Þungfært er á Klettshálsi og eins víða á Ströndum.
Norðurland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur. Þæfingur er á Þverárfjalli, á Grenivíkurvegi og í Ljósavatnsskarði en ófært er um Víkurskarð.
Norðausturland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar og nokkur skafrenningur. Þæfingur er á Fljótsheiði, fyrir Tjörnes og á Hófaskarði og Hálsum. Þungfært er innansveitar í Vopnafirði og á Vopnafjarðarheiði en ófært er um Hólasand.
Austurland: Hálka, snjóþekja og skafrenningur eða éljagangur nokkuð víða. Þæfingur er á Fagradal og í Hróarstungu en þungfært á útvegum í Fjallabyggð. Ófært er um Fjarðarheiði
Suðausturland: Hálkublettir og skafrenningur og víða allhvasst, jafnvel sandfok.
Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.
Ábending um hálkuvarnir
Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/