Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.2.2019

9.2.2019 19:45

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eða hálka á nokkrum vegum.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og víða skafrenningur. Þæfingur er á Skógarströnd, í Haukadal og í Heydal en lokað er yfir Fróðárheiði.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum og eitthvað er um éljagang og skafrenning. Þæfingur er á Klettshálsi en þungfært eða þæfingur er víða á Ströndum.

Norðurland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur. Ófært er um Víkurskarð.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar og nokkur skafrenningur. Þungfært er innansveitar í Vopnafirði en ófært er um Hólasand.

Austurland: Hálka, snjóþekja og skafrenningur eða éljagangur nokkuð víða. Þungfært á útvegum í Fjarðabyggð. 

Suðausturland: Hálkublettir og skafrenningur og víða allhvasst, jafnvel sandfok.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.

Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/