Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.2.2019

9.2.2019 8:23

Lokanir á Austurlandi:

Vegurinn um Fjarðarheiði er lokaður.
Vegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi er lokaður.
Verið er að athuga með ástand veganna eftir nóttina og verður byrjað að moka um leið og færi gefst.

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir á nokkrum vegum. Hálkublettir og skafrenningur er á Mosfellsheiði en hvasst er á Kjalarnesi. 

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og víða skafrenningur. Þæfingur er á víða á Snæfellsnesi og þungfært undir Hafursfelli. Lokað er yfir Fróðárheiði vegna snjóa. Mjög hvasst er á sunnanverðu Snæfellsnesi og má búast við lélegu skyggni.

Vestfirðir: Hálka eða þæfingur á flestum vegum og éljagangur eða skafrenningur víða. Þungfært er yfir Steingrímsfjarðarheiði, á Þröskuldum, yfir Vatnsfjarðarháls og á Ströndum.  Ófært er yfir Klettsháls, milli Þröskulda og Reykhólavegar og yfir Bjarnarfjarðarháls. 

Norðurland: Víðast hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur. Ófært er á Þverárfjalli, um Víkurskarð og Almenninga.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar og skafrenningur. Þæfingsfærð er á Fljótsheiði og þungfært kringum Vopnafjörð og yfir Sandvíkurheiði. Ófært er á Hólasandi, um Hófaskarð og Brekknaheiði en lokað er um Mývatns- og Möðrudalsöræfi.

Austurland: Snjóþekja, þæfingur eða jafnvel þungfært er nokkuð víða. Nú er opið um Fagradal en þæfingsfærð er þar. Ófært er mjög víða, s.s. á Þjóðvegi eitt frá Egilsstöðum upp Jökuldal, í Skriðdal, Hróarstungu og á Vatnsskarði eystra en lokað er á Fjarðarheiði.

Suðausturland: Hálkublettir og víða all hvasst.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum. Þungfært er á Lyngdalsheiði. 

Frá veðurfræðingi 8. feb. kl. 11:10

Annar bakki úr norðri stefnir á landið N- og A-vert  fyrir kvöldið. 14-20 m/s, skafrenningur og hríðarveður með köflum fram á nótt frá Holtavörðuheiði, norður og austur um á S-verða Austfirði. Lægir heldur í Öræfum eftir hádegi, en aftur hviðuveður í fyrramálið. 

Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/