Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.2.2019

8.2.2019 19:44

Fjallvegir á Austurlandi:

Vegurinn um Fagradal verður ekki opnaður í dag vegna veðurs og snjóflóðahættu.
Vegurinn um Fjarðarheiði verður ekki opnaður í dag vegna veðurs.
Vegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi mun lokast eftir að þjónustutíma líkur kl. 19:30
Athugað verður með opnanir í fyrramálið. 

Frá veðurfræðingi

8. feb. kl. 11:10

Annar bakki úr norðri stefnir á landið N- og A-vert  fyrir kvöldið. 14-20 m/s, skafrenningur og hríðarveður með köflum fram á nótt  frá Holtavörðuheiði, norður og austur um á S-verða Austfirði.  Lægir heldur í Öræfum eftir hádegi, en aftur hviðuveður í fyrramálið.

Færð og aðstæður

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir á nokkrum vegum. Hálkublettir og skafrenningur er á Mosfellsheiði en óveður er á Kjalarnesi.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og sumstaðar skafrenningur.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða  snjóþekja er á vegum og éljagangur eða skafrenningur mjög víða. Mjög blint er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum sem og við Króksfjarðarnes.

Norðurland: Víðast hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur. Ófært er um Víkurskarð

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka og víðast hvar skafrenningur. Þæfingsfærð er í Bakkafirði og þungfært er orðið innansveitar í Vopnafirði sem og á Brekknaheiði. Ófært er um Hófaskarð og Hálsa en lokað er á Hólasandi.

Austurland:  Víðast hvar hálka eða snjóþekja, og sumstaðar skafrenningur en hvasst er með ströndinni sunnan Breiðdalsvíkur. Þæfingur er í Hvalnesi en víða er þæfingur eða þungfært á útvegum á Héraði. Ófært er í Skriðdal, Hróarstungu og á Vatnsskarði eystra en lokað er á Fjarðarheiði og á Fagradal.

Suðausturland: Hálkublettir eða hálka víðast hvar og sumsstaðar skafrenningur. Hvasst  er nokkuð víða.

Suðurland: Hringvegurinn er nánast auður en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum. Skafrenningur er Lyngdalsheiði.

Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/