Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.2.2019

14.2.2019 13:06

Færð og aðstæður

Suðvesturland: Það er hálka m.a. á Hellisheiði og í Þrengslum en krap á Mosfellsheiði og Suðurstrandarvegi.

Vesturland: Víða autt eða aðeins hálkublettir en þó hálka m.a. á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir víðast hvar.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja, þó síst í Skagafirði.

Norðausturland: Víðast hálka en sumstaðar snjóþekja á útvegum.

Austurland: Hálka eða hálkublettir á fjallvegum og til landsins en mikið til greiðfært með ströndinni.

Suðausturland:
Greiðfært austan til en hálka í Öræfum og þar fyrir vestan.

Suðurland: Snjóþekja eða hálka á flestum vegum og sumstaðar éljagangur.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Vegur getur því verið háll áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/