Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.2.2019

14.2.2019 6:48

Færð á vegum

Suðvesturland: Allvíða hálkublettir og sumstaðar hálka.

Vesturland: Mikið autt eða aðeins í hálkublettum en þó hálka m.a. á Holtavörðuheiði, Fróðárheiði og Laxárdalsheiði.

Vestfirðir: Hálka eða snjóþekja víðast hvar og sumstaðar éljagangur.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja, og skafrenningur við utanverðan Tröllaskaga.

Norðausturland: Færð er ekki að fullu könnuð en hálka eða snjóþekja er á flestum vegum.

Austurland: Það er hálka á fjallvegum og til landsins en hálkublettir eða jafnvel greiðfært með ströndinni.

Suðausturland:
Greiðfært austan til en sumstaðar nokkur hálka vestan Öræfa.

Suðurland: Víða greiðfært eða aðeins hálkublettir en hálka er þó sumstaðar á útvegum og í innsveitum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Vegur getur því verið háll áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/