Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.2.2019

13.2.2019 15:42

Færð á vegum

Suðvesturland: Hálka eða hálkublettir víða en krapi við Meðalfellsvatn.

Vesturland: Mikið autt eða aðeins í hálkublettum en þó hálka m.a. á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði.

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.

Norðurland: Mikið til autt á láglendi á Hringveginum en meiri hálka eða snjóþekja á fjallvegum og útvegum.

Norðausturland: Hálka eða snjóþekja á flestum vegum og sumstaðar éljagangur.

Austurland: Það er hálka á fjallvegum og til landsins en hálkublettir eða jafnvel greiðfært með ströndinni.

Suðausturland:
Hringvegurinn er greiðfær en hálka er á útvegum.

Suðurland: Víða greiðfært eða aðeins hálkublettir en hálka er þó sumstaðar á útvegum og í innsveitum. Flughált er í Neðri Grafningi.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Vegur getur því verið háll áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/