Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.2.2019

13.2.2019 6:49

Færð á vegum

Yfirlit

Milt veður er um allt land og vetrar færð á vegum, hálka, hálkublettir og snjóþekja. Verið er að hreinsa alla helstu leiðir sem eru í þjónustu í dag.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/