Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.2.2019

12.2.2019 21:43

Færð á vegum

Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en eitthvað um hálku eða hálkubletti. Hálka og éljagangur eru á Hellisheiði og í Þrengslum og flughálka er á Grafningsvegi.

Vesturland:  Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og enn nokkuð hvasst. Hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum.  Flughált er á nokkrum útvegum í Borgarfirði og á Mýrum.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum og víða skafrenningur eða éljagangur. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og víða skafrenningur. Hálka og skafrenningur er á Öxnadalsheiði og Þverárfjalli, óveður er í Fljótum og hvasst er all víða.

Norðausturland: Hálka, snjóþekja eða þæfingur á flestum leiðum og all víða skafrenningur. Þungfært er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, frá Mývatni að Reynihlíð, og á Vopnafjarðarheiði og ófært er yfir Fljótsheiði en færð er fín í Köldukinn og Aðaldal sem hjáleið. Krapi er á Brekknaheiði.

Austurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum.

Suðausturland: Hálkublettir á flestum leiðum.  

Suðurland: Suðurlandsvegur er að mestu greiðfær en hálkublettir á útvegum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/