Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.2.2019

11.2.2019 9:55

Ábendingar frá veðurfræðingi

Á undan hitaskilum með morgninum versnar eftir kl. 8 með skafrenningi. Frá kl. 10: 15-20 m/s með hríð og takmörkuðu skyggni frá Sandskeiði og austur fyrir fjall. Lægir og hlánar upp úr kl. 13 til 14. Eins í Þrengslum, Mosfellsheiði og á Lyngdalsheiði.   

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært eða hálkublettir en hálka á fjallvegum. Það er hálka og snjókoma á Hellisheiði en hálkublettir og skafrenningur á Sandskeiði og Þrengslum.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja allvíða en greiðfært á köflum á Snæfellsnesi.  Þæfingur er í Haukadal og á Heydal.

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Einhver skafrenningur á fjallvegum.

Norðurland: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.

Norðausturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja víðast hvar og einhver éljagangur.

Austurland: Hálka eða snjóþekja á vegum.

Suðausturland: Þar er hálka eða hálkublettir á vegum og skafrenningur í Eldhrauni og á Mýrdalssandi.

Suðurland: Hálka eða hálkublettir nokkuð víða en greiðfært á nokkrum köflum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/