Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.2.2019
Ábendingar frá veðurfræðingi
Á undan hitaskilum með morgninum versnar eftir kl. 8 með skafrenningi. Frá kl. 10: 15-20 m/s með hríð og takmörkuðu skyggni frá Sandskeiði og austur fyrir fjall. Lægir og hlánar upp úr kl. 13 til 14. Eins í Þrengslum, Mosfellsheiði og á Lyngdalsheiði.
Færð á vegum
Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært eða hálkublettir en hálka á Hellisheiði, Mosfellsheiði og Kjósarskarði.
Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Þæfingur er í Haukadal og á Heydal.
Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Víða þungfært á Ströndum en unnið að hreinsun. Einhver skafrenningur er á fjallvegum.
Norðurland: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.
Norðausturland: Hálka eða snjóþekja víðast hvar og einhver éljagangur. Þæfingsfærð er í Bárðardal og ófært um Hólasand.
Austurland: Hálka eða snjóþekja á vegum.
Suðurland: Hálka eða hálkublettir nokkuð víða en greiðfært á nokkrum köflum.
Ábending um hálkuvarnir
Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/