Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.2.2019

11.2.2019 19:23

Snjóflóðahætta

Snjóflóðahætta er möguleg snemma í fyrramálið, þriðjudag á eftirfarandi vegum: Súðavíkurhlíð, Kirkjubólshlíð og Hvilftarströnd.

Færð á vegum

Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði, Þrengslum og á Mosfellsheiði en hálka á Kjósarskarði.

Vesturland: Hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja á Fróðárheiði.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Einhver skafrenningur á fjallvegum.

Norðurland: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.

Norðausturland: Hálka eða hálkublettir víðast hvar og einhver éljagangur eða skafrenningur.

Austurland: Hálka eða snjóþekja á vegum og éljagangur með ströndinni.

Suðausturland: Hálka eða hálkublettir á vegum.

Suðurland: Suðurlandsvegur er að mestu greiðfær en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum.


Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/