Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.2.2019
Færð á vegum
Suðvesturland: Víða hálkublettir á láglendi en snjóþekja og skafrenningur á Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og skafrenningur er á Mosfellsheiði og einnig hálka á Kjósarskarði.
Vesturland: Hálka eða hálkublettir á vegum og skafrenningur og éljagangur á Snæfellsnesi.
Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Einhver skafrenningur á fjallvegum.
Norðurland: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.
Norðausturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja víðast hvar og einhver éljagangur.
Austurland: Hálka eða snjóþekja á vegum.
Suðurland: Hringvegurinn er að mestu greiðfær en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum.
Ábending um hálkuvarnir
Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/