Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.2.2019

10.2.2019 8:40

Færð á vegum 

Yfirlit: Víðast hvar hæglætis veður en færð er enn mjög þung á Austurlandi. Ófært er á syðri Háreksstaðaleið og þungfært á Jökuldal. Unnið er að mokstri um allt land.

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eða hálka á nokkrum vegum.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingur er á Skógarströnd, í Haukadal og í Heydal.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Þæfingur er yfir Þröskulda og þungfært víða á Ströndum.

Norðurland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja og eitthvað um éljagang. Þæfingur er á Þverárfjalli og í Almenningum en ófært er í Fljótum.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar. Þungfært er um Brekknaheiði og innansveitar í Vopnafirði en í Vopnafirði er þæfingsfærð. Ófært er um Hólasand.

Austurland: Hálka eða snjóþekja og einhver snjókoma. Ófært er á syðri Háreksstaðaleið og þungfært á Jökuldal - en þungfært er víða á Héraði. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Fagradal og Fjarðarheiði en ófært er á Borgarfjarðarvegi norður af Eiðum og einnig á Hróarstunguvegi.

Suðausturland: Hálkublettir að mestu.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.

Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/