Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.2.2019

10.2.2019 10:10

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eða hálka á nokkrum vegum.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingur er á Skógarströnd, í Haukadal og í Heydal.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Þungfært víða á Ströndum.

Norðurland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja og eitthvað um éljagang.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar. Þungfært er innansveitar í Vopnafirði og ófært er um Hólasand.

Austurland: Hálka eða snjóþekja og einhver snjókoma. Þæfingsfærð og skafrenningur eru á Fjarðarheiði og ófært er á Borgarfjarðarvegi norður af Eiðum, á Hróarstunguvegi og Skriðdal.

Suðausturland: Hálkublettir að mestu.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/