Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-480
Útgáfudagur:12/15/2010
Útgáfa:1.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
G G Akreinamerki

Almennar reglur
Reglugerð um umferðarmerki:
Akreinamerkjum er ætlað að leiðbeina ökumönnum um hvernig akreinar liggja á akbraut. Ennfremur um hvaða akrein ökumenn skuli velja þegar komið er að vegamótum. Akreinamerki skal vera rétthyrndur ferhyrningur þannig að tvær hliðar séu láréttar. Tákn skal vera hvítt á bláum fleti með hvítum jaðri.
Stærð akreinamerkja skal háð samþykki vegamálastjóra að því er varðar þjóðvegi utan kaupstaða og kauptúna en ella lögreglustjóra.

Vinnureglur um notkun:
Möguleiki er á fleiri útfærslum á merkjum en dæmi eru sýnd um á heimasíðunni og fer útlit þeirra þá eftir aðstæðum á hverjum stað.

Algengustu stærðir akreinamerkja eru eftirfarandi:
Gerð
Breidd
(mm)
B
Hæð
(mm)
H
Breidd jaðars
(mm)
j
G01 - G05
700-1100
900
10
G10
600
600
10