Vinnusvæðamerkingar

Reglur um vinnusvæðamerkingar

Tilgangur reglna um vinnusvæðamerkingar er að koma á hertari reglum um merkingar fyrir almenna umferð í dreifbýli og þéttbýli vegna framkvæmda.

Reglurnar eru ætlaðar þeim verkkaupum, hönnuðum, verktökum og eftirlitsmönnum sem á einn eða annan hátt koma að undirbúningi og framkvæmd vega- og gatnagerðarmannvirkja svo og öðrum þeim stofnunum og fyrirtækjum sem vinna að framkvæmdum á eða við vegsvæði.

Tilgangur með merkingunum er fjórþættur:

  • Að vernda starfsmenn og vegfarendur
  • Að auka og tryggja umferðaröryggi almennt
  • Að lágmarka umferðartafir
  • Að hámarka framkvæmdahraða

Reglur um vinnusvæðamerkingar - 9. útg. feb. 2012

Merkingar vinnusvæða - Teikningar - 8. útg. feb. 2013

Uppsetning umferðarmerkja - Handbók

Upplýsingar um lög og reglugerðir sem varða merkingar vinnusvæða er að finna hér:

Dæmi um framkvæmdaheimild Vegagerðarinnar fyrir aðila sem fengið hafa leyfi til vinnu á vegi eða vegsvæði


Um eftirlit með merkingum vinnusvæða

Umsjónarmaður/eftirlitsmaður gerir skipulega úttekt á merkingu vinnusvæða a.m.k. fyrir hvern verkfund. Nota skal meðfylgjandi gátlista við úttektina. Niðurstöður úttekta á vinnustaðamerkingum skal skrá í verkfundagerðir og skal skila gátlistanum til Árangurs- og eftirlitsdeildar a.m.k. mánaðarlega á meðan á framkvæmdum stendur.

Gátlisti fyrir úttektir á merkingum vinnusvæða

Óútfyllt úttektareyðublað (xlsx)

Skýringar fyrir úttektareyðublað - júlí  2011

Kostnaðaráætlunareyðublað vegna vinnusvæðamerkinga (xls)

Vinnusvæðamerkingar merkingaráætlun (xlsx)

Vettvangsúttekt á vinnusvæðamerkingum  (xlsx) 

Eftirlit með vinnusvæðamerkingum, eyðublað  (xlsx)


Í reglugerð nr. 492/2009 um merkingu vinnusvæða og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg er  m.a. kveðið á um að Vegagerðinni sé falið að skrifa nánari reglur um kröfur, útfærslu og framkvæmd vinnusvæðamerkinga.
Í reglunum eru strangar kröfur um þekkingu og réttindi þeirra sem koma að þessum málum hvort sem um er að ræða verkkaupa, verktaka, hönnuði, eftirlitsmenn o.fl sem koma að framkvæmdum sem þessum.
Allir sem koma að þessum málum fyrir Vegagerðina s.s. verktakar, hönnuðir, eftirlitsmenn o.fl  sem tengjast verkefnum á hennar á þessu sviði þurfa að sækja námskeið og staðist próf um vinnusvæðamerkingar eins og gerðar eru kröfur um í umræddum reglum. 

Námskeið:

Hægt er að sitja námskeið um merkingu vinnusvæða hjá Opna háskólanum í HR. Smellið hér til að nálgast nánari upplýsingar um næsta námskeið sem verður haldið 7. og 8. mars 2012.

Aðilar sem staðist hafa próf um vinnusvæðamerkingar (xlsx)




Útlit síðu: