Fréttir
  • Kjalarnes

Vegagerðin kærir ákvörðun Skipulagsstofnunar

Telja að fyrirhuguð breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum

12.7.2019

Vegagerðin hefur ákveðið að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Að mati Vegagerðarinnar er ákvörðunin ekki í samræmi við fyrri fordæmi og túlkun laga um mat á umhverfisáhrifum hvað snertir matsskyldu framkvæmda þegar verið er að breikka veg úr tveggja akreina vegi í 2+1 veg.

Nauðsynlegt sé því að fá frekari umfjöllun um ákvörðunina með tilliti til fordæmisgildis gagnvart öðrum sambærilegum framkvæmdum.

Ákvörðunin eins og hún er fram sett getur að mati Vegagerðarinnar valdið vafa um hvernig meðhöndla eigi aðrar slíkar framkvæmdir með tilliti til mats á umhverfisáhrifum. Vegagerðin mun samhliða flýta undirbúningi verkefnisins eins og kostur er þannig að framkvæmdir tefjist sem allra minnst.