Fréttir
  • Vatnaskemmdir við Fáskrúðsfjörð
  • Vatnaskemmdir við Fáskrúðsfjörð
  • Vatnaskemmdir við Fáskrúðsfjörð
  • Vatnaskemmdir við Fáskrúðsfjörð
  • Vatnaskemmdir við Fáskrúðsfjörð
  • Vatnaskemmdir við Fáskrúðsfjörð

Vatnaskemmdir á Austurlandi

Töluverðar skemmdir á vegum

15.1.2018

Íslensk náttúra og íslenskt vetrarveður lætur ekki að sér hæða. Skemmdir urðu víða á vegum á Austurlandi í vatnsveðrinu sem þar gekk yfir um nýliðna helgi sem sjá má á yfirlitinu. Unnið er að viðgerðum svo sem kostur er. 

Á Seyðisfjarðarvegi varð úrrennsli úr vegköntum á nokkrum stöðum í Lönguhlíð og Neðri Staf.

Í Fljótsdal og Fljótsdalshéraði urðu minniháttar skemmdir á nokkrum heimreiðum.  Á Múlavegi í Skriðdal grófst vegur sundur utan við Borg.

Varnargarðar skemmdust við Jóku í Skriðdal.  Á Skriðdals- og Breiðdalsvegi grófst vegur  í sundur innan við Skriðuvatn og á Breiðdalsheiði rann yfir veg þannig að slitlag skolaðist úr vegi á kafla.

Í Breiðdal og Norðurdalur urðu smá skemmdir í vegköntum á þó nokkrum stöðum.

Norðfjarðarvegur í Norðfjarðarsveit:  Ræsi fylltust og rann á nokkrum stöðum yfir veg þannig að  smá skemmdir urðu á vegi og ræsaendum. Grænanesvegur í Norðfirði fór í sundur á 2 stöðum.

Hringvegur í Fáskrúðsfirði: Dalsá braut úr vegfyllingum með vegi á stuttum kafla.  Rann yfir veg sunnan fjarðar á 10 stöðum þannig að úrrennsli varð úr vegfyllingum og  vegköntum ásamt minni háttar skemmdum slitlagi auk skemmda á ræsaendum.

Vegur að Hafranes í Reyðarfirði grófst í sundur.  Helgustaðavegur, úrrennsli á nokkrum stöðum.

Hringvegur í Berufjarðarbotni: Úrrennsli úr vegköntum og við ræsi á tveimur stöðum og lækir fóru upp úr farvegum á nokkrum stöðum með tilheyrandi skemmdum.

Vegur að Hofi í Álftafirði grófst sundur ásamt vegi að Hamarseli í Hamarsfirði á tveimur stöðum.

Davíð Þór Sigfússon, Vegagerðinni Reyðarfirði, tók myndirnar.