Umferðin á Hringvegi í ágúst jókst um tæp 4%
Stefnir í að umferðin í ár aukist um tæp 4%
Umferðin í nýliðnum ágúst mánuði jókst um 3,8 prósent og nú er útlit fyrir að umferðin í ár aukist um svipað í heild eða um tæp fjögur prósent. Sem er svipað og meðaltalsaukningin á hverju heilu ári frá árinu 2005 en langt frá aukningunni í fyrra. En allt árið 2017 jókst umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum um 10.6 prósent. Þannig að útlit er fyrir að verulega dragi úr umferðaraukningunni í ár.
Milli mánaða 2017 og 2018
Umferðin í
nýliðnum ágúst mánuði, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, jókst um
3,8% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Umferð jókst í öllum svæðum nema á Suðurlandi en mældan samdrátt á því svæði má líkast til skrifa á viðgerðir á Ölfusárbrú
og malbikunarframkvæmdir á Hellisheiði. Mest jókst umferð um Norðurland eða um 6,6%. Mesta aukning á einstaka stöðum var um Mývatnsheiði eða aukning um 14,4%.
Frá áramótum milli áranna 2017 og 2018
Það sem af er ári hefur umferðin nú vaxið um 4,1% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur umferðin aukist um Suðurland eða um 7,9% en minnst um Vesturland eða um 2,5%.
Umferðin hefur aukist mest á mánudögum eða um 5,7% en dregist saman á sunnudögum um 1,9%.
Horfur út
árið 2018
Nú stefnir
í að umferðin geti aukist um tæp 4% miðað við árið 2017. Búist er við því að aukningin
verði mest á Austurlandi eða um 6% en minnstri aukningu er spáð á Norðurlandi eða
um 2%.