Fréttir
  • Umferðin í byrjun mars

Umferð dregst hratt saman á höfuðborgarsvæðinu í marsbyrjun

verður að teljast líklegt að áhrif Covid-19 sé hluti skýringar

13.3.2020

Umferðin í byrjun mars hefur dregist mun meira saman en reyndin varð í janúar og febrúar. Líklegt verður að telja að hér gæti áhrifa af ástandinu vegna Covid-19. Hvort sem um er að ræða beinan samdrátt í umferð vegna kórónaveirunnar eða um sé að ræða afleiddan samdrátt vegna minnkandi umsvifa og t.d. fækkunar ferðamanna. Nema hvorttveggja sé ástæðan. 

Uppsöfnuð umferð í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, fyrstu 12 dagana í mars, borið saman við sama tímabil á síðasta ári, hefur dregist saman um 4%.  Þegar horft er á tengingu umferðar við hagvöxt, sbr. fyrri fréttir Vegagerðarinnar af lykilteljurum, verður að telja þetta umtalsverðan samdrátt haldist hann út mars, sem einnig yrði þá nýtt met í samdrætti milli marsmánuða.  En til að setja þennan samdrátt í samhengi við það sem hefur gerst í fyrstu tveimur mánuðum ársins þá dróst umferðin saman um 1,6% í janúar og 0,9% í febrúar.  Þannig að það var útlit fyrir einhvern samdrátt í mars líka.

En samdrátturinn skiptist svona niður á sniðin þrjú:

Lykilteljari  Samdráttur
 Hafnarfjarðarvegur- 7,1 %
 Reykjanesbraut- 4,1 %
 Vesturlandsvegur- 1,3 % 

Af þessu sést að umferðin dregst mest saman á Hafnarfjarðarvegi en minnst á Vesturlandsvegi.

Það skal undirstrikað að umræddur samanburður byggir aðeins á 12 daga tímabili í mars, það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu. Það verður að teljast líklegt að einhverskonar samkomubann muni draga verulega úr umferð.