Fréttir
  • Við Steinvötn 2.10.2017
  • Við Steinvötn 2.10.2017
  • Við Steinvötn 2.10.2017; hér eru Vilhjálmur  Árnason, Ólafur Pálmi Tryggvason og Erlendur Ingi Guðmundsson
  • Við Steinvötn 2.10.2017
  • Við Steinvötn 2.10.2017
  • Við Steinvötn 2.10.2017 Sigurður Hallur Sigurðsson og Aron Bjarnason Vegagerðinni
  • Við Steinavötn 2.10.2017

Ekki unnt að heimila umferð minni bíla yfir brúna yfir Steinavötn

brúin stóðst ekki álagspróf

2.10.2017

Sú ákvörðun hefur verið tekin að heimila ekki akstur minni bifreiða yfir brúna yfir Steinavötn þar sem laskaða brúin stóðst ekki álagspróf. Í allan dag hafa staðið yfir álagspróf á brúnni en Vegagerðarmenn gerðu sér vonir um að það yrði hægt að leyfa bílum undir 2,5 tonnum að aka yfir brúna. Svo reyndist ekki vera. Því verður bílaumferð að bíða þess að lokið verði við smíði bráðbirgðabrúarinnar. Áfram verður þó heimil för gangandi vegfarenda yfir brúna undir eftirliti og stjórn björgunarsveita og lögreglu á staðnum..  

Niðurstöður álagsprófanna gáfu til kynna að ekki væri öruggt að hleypa almennri umferð léttra ökutækja á brúna. Prófin staðfestu umfangsmiklar skemmdir á burðarvirki brúarinnar í kjölfar þess að gróf undan einum millistöpli í vatnavöxtunum.

Vinna við byggingu nýrrar bráðabirgðabrúar hefur gengið mjög vel. Búið er að reka niður alla staura en sett eru upp átta svokölluð ok, en á þeim hvíla síðan stálbitar sem bera að lokum brúargólfið sem ekið er yfir. Nú þegar er búið að hífa nokkra stálbita á sinn stað og einnig hafa brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar hafist handa við að koma brúargólfinu fyrir á bitunum. Mest allt efni er komið á verkstað sem og starfsmenn beggja brúarvinnuflokka auk fleiri starfsmanna Vegagerðarinnar.

Unnið er einnig af krafti við að leggja veg að nýju brúnni. Miðað við hraðann í verkinu má nú reikna með að hægt verði að opna fyrir umferð allra bíla yfir bráðabirgðabrúna fyrir helgina.