Umferð á höfuðborgarsvæðinu eykst í október
reyndist um 20 prósentum meiri en í fyrra
Umferðin í október á höfuðborgarsvæðinu jókst um nærri 20 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Umferðin er eigi að síður töluvert minni en hún var árið 2019 og einnig minni en hún var 2018. Á höfuðborgarsvæðinu er því ekki slegið met líkt og á Hringveginum.
Milli mánaða
Umferð, yfir þrjú lykilmælisnið, innan höfuðborgarsvæðis
jókst um tæp 20% í milli október mánaða 2020 og 2021. Umferð jókst mikið
í öllum mælisniðum en mest um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 34% og minnst
um mælisnið á Vesturlandsvegi eða um 9%.
Skýringin á mikilli aukningu milli október mánaða er meðal annars sú að umferð í október á síðasta ári hafði dregist gríðarlega mikið saman og var umferðin þá svipuð því sem hún var árið 2014. T.d. var nýliðin októberumferð 4% minni en metárið 2019 og rúmlega 2% minni en árið 2018.
Umferð eftir vikudögum
Á virkum dögum var mest ekið á föstudögum en minnst á
þriðjudögum, í nýliðnum mánuði. Hlutfallslega jókst umferð mest á sunnudögum en
minnst á föstudögum, miðað við sama mánuð á síðasta ári.
Umferð frá áramótum
Núna hefur umferðin aukist um 7,5% frá áramótum sé miðað við
sama tímabil á síðasta ári og aðeins tvívegis hefur umferð verið meiri en árið
2019 eða í júní (1,8%) og í september (1,2%), sjá meðfylgjandi súlurit.
Horfur út árið 2021
Nú stefnir í að umferð á höfuðborgarsvæðinu geti aukist um
tæp 9% og gangi sú spá eftir yrði hún samt sem áður rúmlega 2% minni en 2019 og
rúmlega 1% minni en árið 2018.