Fréttir
  • Gleðileg jól.

Þjónusta Vegagerðarinnar um jólin

aðfangadag, jóladag og annan í jólum

21.12.2016

Aðfangadag og jóladag er miðað við að þjónustu Vegagerðarinnar ljúki klukkan 14:00 en ef þannig stendur á yrði þjónustu, mokstri og slíku sinnt til u.þ.b. 15:00. Séu veðurhorfur góðar sem og  færð og ástand á vegum getur þjónustu lokið mun fyrr. Opið er hjá umferðarþjónustunni í síma 1777 til kl. 13:00 aðfangadag og til kl 12:00 á jóladag.

Á annan í jólum er þjónustan venjubundin og opið í síma 1777 fyrir upplýsingar um veður og færð frá 06:30 til 22.00.

Á þéttbýlissvæðum sérstaklega suðvestanlands gæti þjónustan orðið nokkuð meiri en eigi að síður yrði þjónusta í lágmarki. Þjónustan tekur mið af veðri og af umferð. Vakt er allan sólarhringinn í vaktstöð í Reykjavík.

Sjá þjónustuna eftir stöðum hér fyrir neðan eða hér í pdf-skjali.

Thjonusta-um-jol-og-aramot