Fréttir
  • Nýr Herjólfur teikningar vor 2017
  • Nýr Herjólfur teikningar vor 2017
  • Nýr Herjólfur teikningar vor 2017
  • Nýr Herjólfur teikningar vor 2017
  • Nýr Herjólfur teikningar vor 2017
  • Nýr Herjólfur teikningar vor 2017
  • Nýr Herjólfur teikningar vor 2017

Útlitsteikningar af nýjum Herjólfi

nýjar teikningar frá pólsku skipasmíðastöðinni

6.4.2017

Pólska skipasmíðastöðin CRIST S.A. sem samið var við um smíði á nýrri Vestmannaeyjaferju er komin á fullt í verkefninu. Stöðin hefur nýlega unnið teikningar af útliti nýs Herjólfs sem fylgja með þessari frétt.

Pólverjarnir eru að hanna skipið og gengur sú vinna vel. Skipið fer svo í líkanprófanir eftir páska.  Pöntun á aðalvélbúnaði, skrúfum o.fl. slíku er lokið. 

Gert er ráð fyrir að stálskurður hefjist í maí og kjölurinn verði lagður í júlí/ágúst en þá hefst eiginlega smíði skipsins.  

Stefnt er svo að ljúka smíðinni næsta sumar samkvæmt áætlun. Enda reiknað með því að ný ferja verði komin í gangið fyrir þjóðhátíðina í Eyjum 2018.