Fréttir
  • Skrifað undir verksamning
  • Teikning af framkvæmdinni
  • Skrifað undir verksamning

Skrifað undir verksamning um Lögbergsbrekku

verktakar eru Jarðval sf. og Bjössi ehf.

29.11.2021

Verkið er á Hringvegi, Fossvellir - Lögbergsbrekka. Um er að ræða tvöföldun á Hringveginum frá Fossvöllum vestur fyrir Lögbergsbrekku með hliðarvegum og undirgöngum fyrir ríðandi umferð.

Það voru þeir Árni Geir Eyþórsson frá Jarðvali sf. og Árni Snær Kristjánsson frá Bjössa ehf. sem skrifuðu undir verksamning ásamt forstjóra Vegagerðarinnar Bergþóru Þorkelsdóttur. Þeir nafnar sögðu þetta afar jákvætt að hafa nú skrifað undir og reiknuðu með því að hefja störf á verkstað strax á morgun. Bergþóra sagði ánægjulegt að vera búin að skrifa undir verksamning um þetta verk en óvenjulangan tíma tók að fá framkvæmdaleyfi vegna stöðu á skipulagsmálum á svæðinu.
Tilboð þeirra hljóðaði upp á rúma 790 m.kr. sem var um 85 prósent af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.