Fréttir
  • Umferðin á Hringveginum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin eftir vikudögum

Samdráttur í umferðinni á Hringveginum

mikill samdráttur á Suðurlandi

1.10.2019

Umferðin á Hringveginum dróst saman um 1,7 prósent í nýliðnum septembermánuði. Það hefur verið lítið um samdrátt í umferðinni liðin misseri en hér vekur athygli að mestur samdráttur er á Suðurlandi og mælist hann heil 8,5 prósent. Eigi að síður má reikna með að í heild aukist umferðin í ár um 2-3 prósent á Hringveginum.

Milli mánaða 2018 og 2019
Umferðin í nýliðnum september dróst saman um 1,7% miðað við sama mánuð á síðasta ári yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum. Þetta er í annað sinn sem samdráttur mælist á milli mánuða á þessu ári en áður hafði umferðin dregist saman í mars mánuði sem á sér þó skýringar sem snúa að tímasetningu páska.  Við þetta bætist hins vegar líka minnsta mögulega aukning í ágúst sl. eða aukning sem einungis nam 0,1%. Í ljósi þessa má velta því fyrir sér hvort að hagkerfið sé tekið að kólna, rétt eins og mælingar Seðlabanka og Hagstofu gefa til kynna.  Umferðartölurnar styðja þá niðurstöðu því eins og umferðardeild Vegagerðarinnar hefur bent á, í þessum fréttum af umferð, að þá virðist vera mikið samhengi á milli hagvaxtar og umferðartalna. Þegar grannt er skoða er það kannski heldur ekki skrítið heldur í raun eðlilegt að umferðin fari saman við umsvif í samfélaginu og því ekki óvænt að hagsveiflur mælist í umferðartölum.

Umferðin jókst einungis á einu landssvæði eða á Vesturlandi um 1,7%.  Umferðin dróst hins vegar mest saman um Suðurland eða um 8,5%, sem telja verður talsvert mikið og athyglisvert.


Samanburðartafla

 







Frá áramótum 2018 og 2019
Frá áramótum hefur umferðin aukist um tæp 3% og er það minnsta aukning miðað við árstíma frá árinu 2012.  Mest hefur umferðin aukist um Vesturland en dregist mest saman um Austurland eða 3%.

Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári hefur umferðin aukist í öllum vikudögum en þó hlutfallslega mest á sunnudögum eða um 6%.  Minnst hefur umferðin aukist á mánu- og laugardögum eða um 1,8%. 

Að jafnaði er mest ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum. 

Horfur út árið 2019
Umferðarlíkan umferðardeildar gerir ráð fyrir 4 – 5% vexti í umferðinni í þremur síðustu mánuðum ársins. Ef að hagkerfið er hins vegar að kólna verður það að teljast ólíkleg niðurstaða og gæti aukningin orðið heldur minni en þau 3,3% sem reiknimódel umferðardeildar gerir ráð fyrir.  Ef gengið er út frá 0% aukningu í næstu mánuðum verður heildar aukning ársins 2,3%.  Þ.a.l. mætti gera ráð fyrir að aukningin verði á þessu bili í árslok.

Talnaefni .