Fréttir
  • Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2017

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2018

Verður haldin í Hörpu, föstudaginn 2. nóvember 2018

9.10.2018

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 2. nóvember 2018.

Þetta er sautjánda ráðstefnan, en ráðstefnunni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Vegagerðin vinnur að innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri og hvetur þátttakendur til huga að lágmörkun umhverfisáhrifa, svo sem með notum á vistvænum ferðamáta til og frá ráðstefnunni og taka þátt í úrgangsflokkun á staðnum.

Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna á vefnum, frestur til að skrá sig er til og með 31. október 2018.

Þátttökugjald er 16.000 krónur og 4.500 krónur fyrir nema og eftirlaunaþega.

Dagskráin með ágripum er hér.