Fréttir
  • Steypt slitlag á nýja brú yfir Steinavötn í Suðursveit.
  • Steypt slitlag á nýja brú yfir Steinavötn í Suðursveit.
  • Ein af mörgum prófblöndum á rannsóknarstofu.
  • Viðgerð á Miðfjarðará vegna slits, sumarið 2018. Byrjað var á því að fræsa og sums staðar þurfti að vatnsbrjóta því steypan var illa farin.
  • Viðloðunarpróf (bond test) milli ásteypu og steypts undirlags.

Rannsókn á slitþolinni hástyrkleikasteypu

Styrkt af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar

28.9.2021

Steyptar brýr eru algengasta tegund brúa í íslenska vegakerfinu. Utan þéttbýlis hefur ekki tíðkast að leggja sérstakt slitlag á brúargólf slíkra brúa eftir að þær hafa verið steyptar, heldur hefur verið ekið á brúargólfinu sem jafnframt er hluti af burðarvirki brúarinnar. Þetta hefur verið gert þar sem erfitt er að nálgast malbik út á landi. Vegna umferðaraukningar, sem og þungaflutninga, ásamt negldum hjólbörðum hefur hjólfaramyndun og slit aukist verulega á brúargólfum. Það hefur því þurft að ráðast í viðgerðir og ein lausnin er leggja sérstakt slitlag úr hástyrkleikasteypu. Þetta var gert í viðgerðum á brúargólfi Borgarfjarðarbrúar þar sem slitlagið var steypt 90 mm þykkt.

  • Tilgangur og kostir sérstaks slitlags á brýr eru meðal annars þessir:
  • Veitir vörn fyrir undirliggjandi burðarsteypu, kapla og járnbendingu með tilliti til vatns og salts.
  • Lokar sprungum sem hugsanlega myndast í burðarsteypu, t.d. vegna hitamyndunar.
  • Vinnuaðstaða við frágang sérstaks slitlags er góð og tryggir betur slétt yfirborð í samræmi við kröfur.
  • Hástyrkleikasteypa með slitþolnu steinefnum leiðir til lengri endingar og lægri viðhaldskostnaðar.

Slitþolin 50 mm hástyrkleikasteypa var fyrst notuð í viðgerð á brúargólfi Ölfusárbrúar haustið 2018. Það sem er nýjung í skýrslunni er að hún var þróuð og rannsökuð nánar til notkunar á nýjar brýr. Í slitþolinni hástyrkleikasteypu er meðal annars leitast eftir lítilli rýrnun, þéttleika, frostþoli og  slitþoli. Mælingar liggja fyrir á þessum eiginleikum.

Nú þegar hafa fjórar brýr verið byggðar með sérstöku 50 mm slitlagi með hástyrkleikasteypu. Brýrnar eru Steinavötn í Suðursveit haustið 2020,   Hattardalsá haustið 2020, Bjarnardalsá vorið 2021 og Botnsá á Vestfjörðum sumarið 2021.

Verkefninu er stýrt af Ólafi W. Wallevik hjá Rannsóknastofu byggingariðnaðarins (Rb) og Helga S. Ólafssyni hjá Vegagerðinni.

Þessi grein birtist í 5. tbl. Framkvæmdafrétta.  Rafræna útgáfu má finna hér.   Áskrift að Framkvæmdafréttum er án endurgjalds og hægt er að skrá sig fyrir áskrift með því að senda póst á sogi@vegagerdin.is.