Fréttir
  • Ráðstefna um öryggi sjófarenda verður haldin 19. mars.

FRESTAÐ - Ráðstefna um öryggi sjófarenda

Sofnað á verðinum - hvað er til ráða?

5.3.2020

Uppfært 12. mars 2020: Ráðstefnu um öryggi sjófarenda sem halda átti 19. mars hefur verið frestað fram á haust. Nánari tímasetning ákveðin síðar.


Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti og Siglingaráð, í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir ráðstefnu um öryggi sjófarenda fimmtudaginn 19. mars í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg.
Það sem af er öldinni hafa hátt í 200 skip og bátar strandað, fjórðungur þeirra vegna ofþreytu skipstjórnanda. Á sama tíma hefur slysum á fólki á sjó þar sem siglt er of hratt miðað við aðstæður fjölgað mikið. Í báðum tilfellum er athyglisbrestur vegna þreytu eða þekkingarleysis helsti orsakavaldur. Á ráðstefnunni verður fjallað um þær hættur sem stafa af ofþreytu eða andvaraleysi þeirra sem stýra skipum og bátum og leiðir til lausna í lagasetningu, fræðslu og áróðri sem og tækninýjungum.

Frítt er inn á ráðstefnuna.

Skráning er á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Dagskrá

13:00–13:10—Setning
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra siglingamála

Stefna, aðgerðir, árangur

13:10–13:35—Öryggisáætlun sjófarenda: Staða, aðgerðir, árangur
Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður Siglingaráðs
13:35–14:00—Maritime safety in Polar waters: An update on the Cape Town Agreement ratification process
Michael Kingston, sérfræðingur í hafrétti og ráðgjafi IMO, Michael Kingston Associates
14:00–14:20—Slys á sjó
Methúsalem Hilmarsson, forstöðumaður forvarna hjá TM
14:30–14:45—Kaffihlé

Forvarnir, tækni og nýsköpun

14:45–15:00—Upplýsingar og öryggi, af ölduspá og fleiri nýjungum
Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnadeildar Vegagerðarinnar
15:00–15:20—Vaktarinn
Björn Jónsson, framkvæmdastjóri, Hefring Marine
15:20–15:40—Strandvarinn
Þórarinn Harðarson, rafmagns- og tölvuverkfræðingur, Strandsýn ehf.
15:40–16:00—Að hvolfa: Sleppibúnaður fyrir lítið dýpi
Joakim Unosson, verkfræðingur hjá CM Hammar í Svíþjóð
16:00–16:15—Hvert skal stefna? Pallborðsumræður
Umsjón:Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
16:15–17:00—Fundarslit og léttar veitingar

Fundarstjóri er Sigríður Ingvarsdóttir, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.