Fréttir
  • Seifur

Nýr öflugur dráttarbátur á Norðurlandi

Báturinn verður með 42 tonna togkraft og því fjórfalt öflugri en sá sem fyrir er

10.6.2018

Hafnasamlag Norðurlands á von á nýjum og öflugum dráttarbát um helgina en báturinn hefur verið í  smíðum síðastliðið  ár í skipasmíðastöðinni Armon í norðurhluta Spánar. Nýr dráttarbátur fyrir Hafnasamlag Norðurlands hefur verið inni á samgönguáætlun en smíði hans er styrkt um tæp 60% af hafnabótasjóði. Gert er ráð fyrir að hann komi til heimahafnar á Akureyri næst komandi sunnudag.

Báturinn verður með 42 tonna togkraft og því fjórfalt öflugri en sá sem fyrir er. Hann er 22 metra langur og 9 metra breiður. Báturinn er búinn azimuth skrúfubúnaði og verður öflugasti dráttarbátur landsins. Hann er Hann er með tveimur Cummins vélum 1193 kW. Með Azimuth skrúfum en þær er hægt að láta snúast í hring og eykur stjórnhæfni bátsins verulega.  Sprautu til slökkva eld og 25 tonn-metra þilfarskrana.

Með því að festa kaup á svo öflugum dráttarbát er svarað kalli breyttra tíma, skipin stækka og núverandi dráttarbátar hafa ekki verið nógur öflugir fyrir Hafnasamlagið. Með tilkomu nýja bátsins eykst öryggið til muna og þjónustugildið eykst gríðarlega.  Einnig opnast möguleikar á að þjónusta aðrar hafnir á norðurlandi eins og t.d. Húsavíkurhöfn en mikil þörf er á þjónustu dráttarbáts þar eftir að stóriðjan á Bakka opnaði. 

Kaupverðið á bátnum er um 490 milljónir króna er það á pari við kostnaðaráætlun.  Báturinn hefur hlotið nafnið Seifur.

Fleiri myndir í pdf-skjali: Seifur-myndir