Fréttir
  • Gönguþveranir skýrsla

Leiðbeiningar um gerð gönguþverana

leiðbeiningar um útfærslu mismunandi þverana

20.1.2015

Gönguþveranir, svo sem gangbrautir, þar sem gert er ráð fyrir að gangandi og hjólandi komist yfir götu eru með ýmsu móti og mjög mismunandi svo sem fram hefur komið í fréttum. Til að auðvelda hönnuðum vinnu sína hafa þessar leiðbeiningar verið unnar og útgefnar.

Leiðbeiningarnar, úr inngangi:

Í þessum leiðbeiningum er fjallað um útfærslu gönguþverana í plani. Með gönguþverun  er átt við stað þar sem gert er ráð fyrir að gangandi og hjólandi vegfarendur geti komist yfir götu. 


Gönguþveranir geta verið:
  • Ómerktar
  • Merktar sem gangbrautir (sebrabrautir)
  • Með umferðarljósum, nærri eða fjarri gatnamótum
  • Mislægar (ekki fjallað um)

Markmiðið  með  útgáfu  þessara  leiðbeininga  er  að  auðvelda  hönnuðum, tæknimönnum sveitarfélaga og öðrum veghöldurum vinnu við skipulag gönguþverana og val á hvaða útfærsla henti  fyrir  mismunandi  aðstæður. Einnig  er  markmiðið  að  stuðla  að  gerð öruggra gönguþverana  og  aðlaðandi  og  aðgengilegu  umhverfi  allra  vegfarenda. Þá munu leiðbeiningarnar hjálpa til að gera aðstæður sambærilegar um land allt sem kemur í veg fyrir óvissu og stuðlar þannig að því að staða allra vegfarenda sé skýr í umferðinni. Leiðbeiningarnar  eru  unnar  af  Herði  Bjarnasyni  (Mannvit)  og  Guðbjörgu  Lilju Erlendsdóttur (Efla) fyrir Vegagerðina og Reykjavíkurborg, í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Samgöngustofu. Umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu veitti álit vegna löggæsluþekkingar.