Fréttir
  • Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2013

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2014

í Hörpu 31. október

7.10.2014

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 31. október 2014.  Þetta er sú þrettánda í röðinni, en kveðið er á í vegalögum um að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

Þátttökugjald er 15.000 krónur og 4.000 krónur fyrir nema.

Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á þessum hlekk til og með miðvikudagsins 29. október.

Dagskrá:

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar
08:00-09:00
Skráning
09:00-09:15
Setning,
Þórir Ingason (Vegagerðin) 
09:15-09:30 Malbiksrannsóknir 2013 og 2014, ágrip KÞP, ágrip PP
Katrín Þuríður Pálsdóttir (Verkís) og Pétur Pétursson (PP ráðgjöf)
09:30-09:45  Rannsóknir á klæðingum og klæðingarefnum, ágrip
Pétur Pétursson (PP ráðgjöf)
09:45-10:00 Vinnsla steinefna til vegagerðar - handbók fyrir vegagerðarmenn, ágrip 
Hafdís Eygló Jónsdóttir (Vegagerðin)
10:00-10:15 Gæðastýring fyrir birgðir Vegagerðarinnar, ágrip
Daníel Árnason (Vegagerðin)
10:15-10:30 Eiginleikar íslensks jarðvegs - úrvinnsla CPT mælinga, ágrip
Ástgeir Rúnar Sigmarsson (HÍ) 
10:30-11:00 Kaffi
11:00-11:15 Fjölnematíðnigreining á yfirborðsbylgjum, ágrip
Elín Ásta Ólafsdóttir (HÍ)
11:15-11:30 Samanburður bormótstöðu við niðurrekstur og burðarþol staura, ágrip
Guðmundur Þorsteinn Bergsson (Verkís)
11:30-11:45 Hornafjarðarós - Grynnslin - Sjávarborðsrannsóknir, ágrip
Sigurður Sigurðarson (Vegagerðin)
11:45-12:00 Umræður og fyrirspurnir
12:00-13:00 Matur
13:00-13:15 Loftræsting jarðganga - uppfært reiknilíkan, ágrip
Sigurður Páll Steindórsson (Mannvit)
13:15-13:30 Öryggi og heilbrigði á verkstað við útlögn bikbundinna slitlaga, ágrip
Anna Jóna Kjartansdóttir og Ólöf Kristjánsdóttir (Mannvit)
13:30-13:45 Aðferðir við að meta kostnað umferðarslysa og virði lífs, ágrip
Haraldur Sigþórsson (Samgöngustofa) og Vilhjálmur Hilmarsson (Mannvit)
13:45-14:00 Rafræn ferðavenjukönnun - Notkun snjallsíma við mælingar á ferðavenjum, ágrip
Haukur Þór Haraldsson (Verkís)
14:00-14:15 Staða hjólreiða á landsvísu, aðferðafræði og ávinningur stefnumótunar,  ágrip 
Eva Dís Þórðardóttir (Efla)
14:15-14:30 Umferðarhraði á vinnusvæðum og áhrif hraðatakmarkandi aðgerða, 
Björn Ólafsson (Vegagerðin)
14:30-14:45 Ísland allt árið eða hvað? ágrip
Katrín Halldórsdóttir og Auður Þóra Árnadóttir (Vegagerðin)
14:45-15:00 Umræður og fyrirspurnir
15:00-15:30 Kaffi
15:30-15:45 Hvernig nota má umferðartalningar til að meta fjölda ferðamanna, ágrip 
Rögnvaldur Ólafsson (HÍ)
15:45-16:00 Könnun á legu útfalla og farvega fallvatna frá Síðujökli og stöðugleika þeirra, þegar jökullinn hörfar, ágrip
Finnur Pálsson (HÍ)
16:00-16:15 Effects of Vegetation on Traffic-Related Particulate Matter, ágrip
Jovana Alkalaj og Þröstur Þorsteinsson (HÍ) [Erindið verður flutt á ensku]
16:15-16:30 Sjávarstraumar og súrefnisbúskapur í Kolgrafafirði, ágrip Sveinn Óli Pálmarsson   (Vatnaskil)
16:30-16:45 Áhrif síldardauða á lífríki hafsbotns í Kolgrafafirði, ágrip
Valtýr Sigurðsson1,2,3, Jón Einar Jónsson2, Róbert A Stefánsson3, Árni Ásgeirsson2 og Jörundur Svavarsson1 (1Líf- og umverfisvísindadeild HÍ, 2Rannsóknasetur HÍ á Snæfellsnesi, 3Náttúrustofa Vesturlands)
16:45-17:00 Umræður og fyrirspurnir
17:00 - Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar
  Glærur og ágrip fyrirlestra verður hægt að finna á vef Vegagerðarinnar að ráðstefnu lokinni