Fréttir
  • Öxnadalsheiði í mars 2014

Vegagerðin í heild innan fjárheimilda en viðvarandi halli á vetrarþjónustunni

Röng útgjaldadreifing leiddi til misskilnings

14.8.2014

Vegagerðin í heild er innan fjárheimilda, fyrstu sex mánuði ársins hafa útgjöld numið 44 prósentum af fjárheimildum alls ársins. Þrátt fyrir það er viðvarandi halli á vetrarþjónustunni vegna erfiðs árferðis undanfarna vetur.

Komið hefur í ljós að við 6 mánaða uppgjör Fjársýslunnar var hún ekki með réttar upplýsingar um útgjaldadreifingu fjárheimilda ársins og miðað var við að aðeins 35% af tekjum ársins kæmu til greiðslu á fyrri hluta ársins. Útgjöldin eftir fyrstu 6 mánuðina voru hins vegar um 44% af fjárheimildunum. Í stað þess að Vegagerðin í heild hafi farið fram úr fjárheimildum sínum var staðan því jákvæð um rúman milljarð  á miðju ári enda aðal framkvæmdatíminn rétt að byrja. Hins vegar er og hefur verið viðvarandi halli á vetrarþjónustulið stofnunarinnar vegna erfiðs árferðis undanfarna vetur sem erfitt er að vinda ofan af. Farið verður yfir þessi atriði á fundi innanríkisráðuneytisins með fjárlaganefnd 25. ágúst og frekari skýringar gefnar eftir því sem óskað verður eftir.