Fréttir
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir mánuðum

Aukin umferð í júlí á Hringveginum

í takt við spá Vegagerðarinnar

1.8.2014

í takt við spá Vegagerðarinnar þá jókst umferðin á völdum talningarpunktum á Hringveginum um 1,8 prósent í júlí. Þetta er annar stærsti júlímánuðurinn. Það stefnir í að árið verið það annað umferðarmesta með 4 prósenta aukningu allt árið.



Milli mánaða 2013 og 2014

Umferðin í júlí jókst um 1,8% frá sama mánuði síðasta árs. Er þetta annar stærsti júlímánuður, í umferðinni, frá því að talningar hófust. Einungis júlí 2009 mældist stærri.  Mest jókst umferðin um Suðurland eða 7,4% en 2,1% samdráttur varð um Norðurland, sem jafnframt var eina landsvæðið þar sem samdráttur mældist, sjá töfluna hér fyrir neðan:

Samanburdur-juli


Það sem af er árs 2013 og 2014
Það sem af er ári hefur umferð aukist um 4,5% en mest hefur aukningin orðið um Suðurland eða um 7,7% en minnst um höfuðborgarsvæðið eða um 3,5%.

Horfur út árið 2014
Horfur eru mjög svipaðar og áður þ.e.a.s. búist er við um 4% aukningu á umferð um Hringveginn núna í ár miðað við árið á undan.  Verði það niðurstaðan þá er þetta annað stærsta umferðarár á Hringveginum, sem yrði þá aðeins brot úr prósenti stærra en mælingar sýndu árið 2008.