Fréttir
Unnið að því að opna til Mjóafjarðar
opnast fimmtudag eða á föstudag
Unnið er að því að opna veginn til Mjóafjarðar á Austfjörðum sem hefur verið lokaður í allan vetur. Búast má við að það náist að opna veginn á morgun fimmtudag eða í síðasta lagi á föstudaginn.
Líkt og víða á landinu er og hefur verið töluverður snjór. Það á við um Austurland líka svo sem sjá má af myndunum sem fylgja fréttinni.