Fréttir
Suðurverk og Metrostav með lægsta tilboð í Norðfjarðargöng
buðu rúma níu milljarða
Metrostav as og Suðurverk hf áttu lægsta boð í gerð Norðfjarðarganga, boðið hljóðaði upp á níu milljarða og 292 milljónir króna. Næst lægsta boð kom frá Ístaki hf, upp á 9,9 milljarða króna og þriðja boð frá IAV hf og Marti Contractors ltd upp á rétt tæpa 10,5 milljarða króna.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 9 milljarða og 547 milljónir króna. Lægsta boð er því 97,3 prósent af áætluðum verktakakostnaði.