Fréttir
  • Héðinsfjörður meðalumferð
  • Héðinsfjörður meðalumferð í mánuði

Jafnmikil umferð í Héðinsfjarðargöngum

nákvæmlega sama umferð og í fyrra

27.6.2012

Umferðin um Héðinsfjarðargöng er nánast sú sama í ár og hún var í fyrra. Einungis munar tveimur bílum að meðaltali á dag það sem af er ári. Þrír stærstu umferðarmánuðirnir eru framundan.

 

Það lítur út fyrir að meðalumferðin á dag árið 2012 verði um 550 bílar (ÁDU). Það þýðir að reikna má með að rúmlega 200 þúsund ökutæki fari um göngin í ár og um 520 þúsund manns verði þróun umferðar með svipuðum hætti og árið 2011.

Þróun umferðar má sjá á meðfylgjandi línuriti.

Meðalumferð í hverjum mánuði má svo sjá á stöplaritinu. Umferðin í janúar var tæpum 7% minni nú í ár miðað við árið 2011 en í maí á þessu ári var umferðin tæpum 11% meiri en fyrir ári síðan.

Eins og meðfylgjandi stöplarit ber með sér eru þrír stærstu umferðarmánuðir ársins framundan, í Héðinsfirði, og því verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.