Fréttir
Suðurstrandarvegur opnaður - Myndir
myndir frá formlegri opnun
Suðurstrandarvegur var formlega opnaður síðdegis í dag. Vegurinn er 57 km langur og tengir saman Suðurland og Reykjanesskagann. Vegurinn nýtist íbúum, atvinnustarfsemi og opnar mikla möguleika í ferðaþjónustu. Ekki síður opnar vegurinn möguleika fyrir til dæmis íbúa höfuðborgarsvæðisins til nýs hringaksturs auk þess að nýta má fjölmarga göngumöguleika svæðisins.
Þetta var eitt af því sem fram kom í ræðum nær allra þeirra sem til máls tóku við þessa formlegu opnun. Sjá myndir með þessari frétt og frétt um veginn frá því fyrr í dag.