Fréttir
  • Frá undirskriftinni 3. maí 2012
  • Frá undirskriftinni 3. maí 2012
  • Frá undirskriftinni 3. maí 2012

Vestfjarðavegur - skrifað undir við Suðurverk

framkvæmdir á kaflanum Eiði - Þverá hefjast strax

3.5.2012

Fulltrúar Vegagerðarinnar og Suðurverks hf skrifuðu í dag undir samning um vegagerð á tæplega 16 km kafla af Vestfjarðavegi (60) Eiði - Þverá. Núverandi kafli er 24 km malarvegur, nýr vegur veðrur 16 kl þar af nýlögn 10 km en stytting kemur til vegna þverana tveggja fjarða, Kjálkafjarðar og Mjófjarðar. 

Suðurverk hefst þegar handa og búast má við að þeirra sjáist strax á verkstað með tæki sín og tól eftir 10 - 14 daga. Nú þegar er prammi sem notaður verður við þveranirnar á leiðinni frá Noregi en Suðurverk hefur lánað hann út til verka þar.

Suðurverk átti næstlægsta boðið í verkið en lægstbjóðandi stóðst ekki kröfur Vegagerðarinnar til verks af þessari gerð. Suðurverk bauð tæplega 2,5 milljarða króna en áætlaður verktakakostnaður var tæpir 2,6 milljarðar króna. Verktakakostnaður er einungis hluti kostnaður við verkið, einsog alltaf, en heildarkostnaður er líklegur um 3 milljarðar króna. Verkið verður unnið á þremur árum.

Sjá um opnun tilboða.

Sjá frétt og skýrslu um umhverfismat sem sýnir verkið